08.11.2012
Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti hefur ákveðið að helga 8. nóvember ár
hvert baráttunni gegn einelti. Slíkur baráttudagur var fyrst haldinn árið 2011 og markmiðið með deginum er og var að vekja
sérstaka athygli á málefninu. Undirritun fulltrúa félaga, samtaka og opinberra stofnana á þjóðarsáttmála gegn einelti
var þar einn liður. Sáttmálinn er einnig grunnur að frekari vinnu,
Á vefsíðunni Í þínum
sporum er hægt að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti. Með því að undirrita skuldbindum við okkur
til að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar.
Lesa meira
06.11.2012
Samkvæmt venju verður skólablaðið Snarl gefið út fyrir jólin. Það eru nemendur 10. bekkjar sem sjá um vinnslu blaðsins og í dag
hófst formlega vinna við það. Í blaðinu verður forvitnilegt efni af ýmsu tagi sem nemendur skrifa að mestu.
Lesa meira
02.11.2012
Skólaakstur fellur niður í dag föstudaginn 2.nóvember.
skólastjóri
Lesa meira
01.11.2012
Í dag var þemadagur hjá yngri deildinni og var hann tileinkaður uppbyggingarstefnunni.
Nemendur fengu fræðslu um þarfirnar, en samkvæmt uppbyggingarstefnunni erum við öll með fimm grunnþarfir sem eru
þó misríkar hjá hverju og einu okkar og hafa mismikil áhrif á líf okkar. Þessar þarfir eru: Öryggi, tilheyra, frelsi, áhrif og
gleði. Nemendur unnu svo ýmis verkefni í tengslum við sínar þarfir og hér er hægt að
sjá vinnu 6. og 7. bekkjar.
Greining þessara þarfa hjálpar okkur m.a. að skilja af hverju við bregðumst misjafnlega við þeim verkefnum sem við
mætum.
Gleði – ánægja
- Skemmtun
- Fagna
- Hlátur
- Brandarar
- Kjánalæti
- Spil og leikir
Frelsi - sjálfstæði
- Velja sjálf(ur)
- Ákveða sjálf(ur)
- Eiga möguleika
- Nýta tækifæri
- Athafnasemi
- Eirðarleysi
Ást - umhyggjaAð tilheyra
- Vinátta
- Væntumþykja
- Vinna í hópi
- Kynnast mörgum
- Skoðanir annarra
skipta miklu máli
Áhrifavald - árangur
- Standa sig vel
- Vera mikilvægur
- Viðurkenning
- Ráða við
- Forðast mistök
- Gott skipulag
Lesa meira
26.10.2012
Í gær var unnin skemmtileg þemavinna í eldri deildinni í tengslum við uppbyggingarstefnuna.
Nemendur fengu fræðslu um þarfirnar, en samkvæmt uppbyggingarstefnunni erum við öll með fimm grunnþarfir sem eru þó misríkar hjá
hverju og einu okkar og hafa mismikil áhrif á líf okkar. Þessar þarfir eru: Öryggi, tilheyra, frelsi, áhrif og gleði.
Lesa meira
25.10.2012
Þar sem almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi var farið yfir fyrstu
viðbrögð við jarðskjálfta með nemendum í morgun. Þar var helst lagt áherslu á eftirfarandi :
Lesa meira
22.10.2012
Fulltrúi HIV samtakanna heimsótti nemendur 9. og 10. bekkjar í morgun og ræddi við þau um HIV-smit,
alnæmi og ýmislegt sem tengist því. Nemendur hlustu af athygli og spurðu síðan ýmissa spurninga sem tengjast þessum
sjúkdómi.
Lesa meira
12.10.2012
Í dag er Bleikur dagur í skólanum en Bleiki dagurinn er hluti af Bleiku slaufu árveknis- og
fjáröflunarátaki krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameini hjá konum. Með því að klæðast einhverju bleiku í dag eða
hafa bleikan lit í fyrirrúmi sýnum við samstöðu í baráttunni.
Hér má sjá nokkrar myndir af
deginum.
Lesa meira
05.10.2012
Dálítil töf varð á því að hægt væri að kenna matreiðslu, tækni- og textílmennt í nýju og endurbættu
skólahúsi við Tjarnarstíg er skólastarfið hófst í haust. Nú eru stofurnar að mestu leiti tilbúnar og kennsla hófst í
þeim nú í vikunni. Enn vantar þó ýmsan búnað í þær og vonir standa til að úr því verði bætt
fljótlega.
Það voru glaðir nemendur og kennarar sem nutu sín í nýju stofunum og hægt er að sjá myndir úr matreiðslu og
texílmenntartíma hjá 5. bekk hér.
Einnig eru myndir í sömu möppu af nemendum á yngra stigi á Hreystidaginn sl. mánudag.
sksiglo.is náði myndum af unglingastiginu og hægt er að sjá þær hér.
Lesa meira
04.10.2012
Nemendur skólans tóku þátt í Norræna skólahlaupinu sl. þriðjudag og stóðu sig einstaklega vel þrátt fyrir erfiðar
aðstæður. Það var úrhellisrigning og jafnvel slydda á köflum en nemendur létu það ekki stoppa sig og hafa sjaldan verið
áhugasamari um að hlaupa. Allir tóku þátt og fjölmargir lögðu 10 km að baki. Nemendur eldri deildarinnar, sem eru rétt rúmlega 80, hlupu
t.d. hvorki meira né minna en 590 km. samtals.
Lesa meira