07.12.2011
Í dag var brugðið út frá hefðbundinni kennslu og var dagurinn
helgaður vinnu gegn einelti. Þar unnu nemendur með ýmis hugtök sem tengjast því hvernig við eigum að koma fram við hvort annað, hvað við
getum gert til að öðrum líði vel og öllum líði sem best.
Lesa meira
05.12.2011
Í dag og á morgun býðst foreldrahópum í 1.-7. bekk að nýta sér aðstöðu skólans til að koma saman með
börnum sínum og eiga góða stund. Margir eru að nýta sér þetta og ætla að koma og föndra eitthvað skemmtilegt fyrir
jólin.
1.-4. bekkur í dag
Ólafsfirði kl: 17:00
Siglufirði kl: 18:00
5.-7. bekkur á morgun
Ólafsfirði kl: 17:00
Siglufirði kl: 18:00
Lesa meira
29.11.2011
Nú á dögunum færði slysavarnarfélagið nemendum í 1.-7. bekk fígúruendurskinsmerki að gjöf og færum við þeim
þakkir fyrir það. Hvetjum við nemendur til að gera sig sýnilega í myrkrinu og nota endurskinsmerki.
Lesa meira
23.11.2011
Vegna útfarar Elvu Ýrar Óskarsdóttur föstudaginn 25. nóvember kl. 10.30 í Siglufjarðarkirkju,
fellur allt skólahald í Fjallabyggð niður þann dag. Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar verða auk þess lokaðar sem og
félagsmiðstöðin Neon.
Aðrar stofnanir bæjarfélagsins verða opnar eftir kl. 14.00.
Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.
Lesa meira
18.11.2011
Fjöldahjálparstöð Rauða kross deildar Ólafsfjarðar verður opin á morgun sunnudag kl. 14-17 í Húsi eldri borgara Ólafsfirði.
Sjálfboðaliðar frá Akureyrardeild Rauða kross Íslands veita aðstoð vegna áfalls í samfélagi okkar. Allir velkomnir.
Fjöldahjálparstöð Rauða kross deildar Siglurfjarðar verður opin laugardag og sunnudag kl. 14-17, báða dagana. Sjálfboðaliðar
frá Akureyrardeild Rauða kross Íslands veita aðstoð vegna áfalls í samfélagi okkar. Allir velkomnir.
Slóðir á bæklinga Rauða krossins
Þegar lífið er erftitt
http://redcross.is/page/rki_frettir&detail=1014386
Aðstoð við börn eftir áfall
http://redcross.is/page/rki_frettir&detail=1014387
Sálrænn stuðningur í skólastofunni - bæklingur
http://redcross.is/page/rki_frettir&detail=1014392
skólastjóri
Lesa meira
16.11.2011
Dagur íslenskrar tungu er íslenskur hátíðardagur,16. nóvember, tileinkaður íslensku.
Haustið 1995 lagði menntamálaráðherra til að einn dagur
ár hvert yrði tileinkaður íslensku og átak gert í varðveislu hennar. Fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar var valinn til minningar um framlag
hans til íslenskunnar.
Fyrsti dagur íslenskrar tungu var 16. nóvember 1996 og
hefur verið haldinn síðan árlega.
Í tilefni dagsins komu nemendur í 1.-6. bekk á Ólafsfirði sama og fluttu ljóð, spakmæli o.fl fyrir aðra nemendur, starfsfólk og
foreldra. Myndir af deginum eru komnar inn í myndaalbúm.
Lesa meira
16.11.2011
Niðurstöður viðhorfskönnunnar sem lögð var fyrir s.l. föstudag má sjá hér. Tæplega 70% þáttaka var í
könnuninni en hún var eingöngu á meðal foreldra nemenda í 8.-10. bekk.
Lesa meira
09.11.2011
Nú er komið að annarskilum. Föstudaginn 11. nóvember verða foreldraviðtöl og mánudaginn 14. nóvember verður starfsdagur og frí
hjá nemendum. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 15. nóvember samkvæmt stundatöflu.
Lesa meira
08.11.2011
Minnum á að leiðsagnarmatið fyrir nemendur lokar í kvöld.
Lesa meira
08.11.2011
Verkefnisstjórn
í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af
fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis, og er hún skipuð í
kjölfarið á útgáfu Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum sem kom út í
júní 2010.
Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmálium jákvæð samskipti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu
velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar. Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum.Við undirritunina verða einnig afhent gul armbönd sem gerð hafa
verið í tilefni dagsins og bera yfirskriftina: Jákvæð
samskipti. Þeim verður í kjölfarið dreift til almennings
eftir því sem að upplag endist.
Einelti spyr ekki um aldur, þjóðfélagshópa eða kyn og það
þrífst einfaldlega allsstaðar þar sem það er látið viðgangast. Ábyrgð okkar allra er því mikil og það er í
okkar höndum að vinna bug á þessu þjóðfélagsmeini. Það er ekki flókið ef allir taka höndum saman og sannmælast um
ákveðna sátt , þjóðarsáttmála um jákvæð samskipti.
Í tilefni af baráttudegi gegn einelti þann 8. nóvember verður opnuð
heimasíðan www.gegneinelti.isog þar gefst fólki kostur á að undirrita eftirfarandi sáttmála:
Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn
einelti
Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti
í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum
sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og allra hópa sem eiga sér hvorki málsvara né sterka rödd. Við munum öll, hvert á
okkar sviði, skuldbinda okkur til að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af
mörkum til að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.
Lesa meira