Vegna
veðurs og versnandi veðurútlits fellur skólaakstur niður í dag í Fjallabyggð. Skólastarf í unglingadeild verður fyrir þá sem
komast. Foreldrar barna í yngri deildum meta aðstæður en skólastarf verður fyrir þá sem koma í skólann. Af
öryggisástæðum er mikilvægt að foreldrar tilkynni forföll símleiðis s:464-9150 eða með tölvupósti á
netfangið helga@fjallaskolar.is