25.04.2012
Í dag var hefðbundin stundaskrá lögð til hliðar og dagurinn notaður til að snyrta umhverfið í báðum bæjarkjörnum
sveitarfélagsins. Nemendum frá Ólafsfirði var skipt í tvo hópa og hreinsuðu þeir til í sitt hvorum bæjarhuta Ólafsfjarðar og
sama á við um siglfirsku nemendurna en þeir hreinsuðu til á Siglufirði. Keppt var um hvor hópurinn safnaði meira af rusli í hvorum bæ fyrir
sig. Var mikið kapp í fólki og gekk hreinsunin vel.
Lesa meira
25.04.2012
Í gær kom Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, við á Siglufirði og í Ólafsfirði í
hringferð sinni um landið. Tilgangur ferðarinnar er að finna rödd þjóðarinnar og fá hana til að hljóma í laginu Ísland sem
Fjallabræður eru að fara að taka upp.
Lesa meira
24.04.2012
Í morgun heimsótti fulltrúi frá menntamálaráðuneytinu nemendur 10. bekkjar og kynnti fyrir þeim svokallaða Europass ferilskrá og afhenti
öllum eintak til að nota í nánustu framtíð. Það styttist í að þessir einstaklingar fari út á vinnumarkaðinn og
þegar sótt er um vinnu þá getur þessi ferilskrá komið að góðum notum.
Lesa meira
24.04.2012
Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans kom í heimsókn til Fjallabyggðar í gær á vegum verkefnisins
Tónlist fyrir alla og héldu tónleika í Siglufjarðarkirkju og Tjarnarborg fyrir nemendur skólans. Meðlimir sveitarinnar fóru
með nemendur í stutt ferðalag í máli, myndum og tónum til nokkurra af Balkanlöndunum. Léku þeir á alls kyns skemmtileg og óvenjuleg
hljóðfæri.
Lesa meira
12.04.2012
Rétt fyrir páskaleyfi fór keppni í riðli skólans í Skólahreysti fram á Akureyri. Farin var hópferð með alla nemendur eldri
deildar til að fylgjast með keppninni og hvetja okkar fólk til dáða. Lið skólans var skipað þeim Agnesi Sigvaldadóttur, Jakobi Snæ
Árnasyni, Köru Gautadóttur og Grétari Áka Bergssyni.
Lesa meira