Skólaakstur fellur niður í dag
			
					17.11.2016			
	
		Skólaakstur fellur niður í dag. Þrátt fyrir það verður mögulegt að mæta í skólann. 
Nemendur í 5.-10.  bekk  búsett í Ólafsfirði mæta í skólahúsið við Tjarnarstíg og nemendur  í 5.-10.bekk búsett á Siglufirði mæta í skólahúsið við Norðurgötu.  Kennarar munu taka á móti nemendum frá klukkan átta og aðstoða þá við nám til klukkan 13.00
Foreldrar þurfa undir öllum kringumstæðum að meta hvort barn á erindi í skólann. Aðstæður fólks eru ólíkar og börnin misjafnlega í stakk búin til að fara út í vont veður.  Foreldrar tilkynna skólanum um forföll vegna veðurs ef þeir treysta sér ekki til senda barn í skólann vegna veðurs, færðar eða slæms útlits.
Lesa meira
		 
					 
 
 
 
 
 
 
 
 
