Fréttir

Starfskynningar

Undanfarna fjóra daga hafa nemendur 10. bekkjar verið í starfskynningum hjá hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum í sveitarfélaginu. Nemendur eru við störf tvo daga í senn hjá hverju fyrirtæki, taka þar þátt í daglegum verkefnum og kynnast starfseminni. Nemendum finnst þetta mjög áhugavert og stundum fá nemendur sumarstörf hjá viðkomandi fyrirtæki í kjölfar starfskynningarinnar.
Lesa meira

Skemmtileg árshátíð

Nemendur eldri deildar héldu árshátíð sína í Tjarnarborg í síðustu viku. Fór hún vel fram og gestir skemmtu sér vel. Matarnefndin útbjó glæsilegan veislumat sem rann ljúft niður og nemendur buðu uppá skemmtiatriði.
Lesa meira

Árshátið eldri deildar á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 23.maí kl. 18.15, verður árshátíð eldri deildar í Tjarnarborg. Á matseðli kvöldsins er hátíðarmatur og ís á eftir. Nemendur í 10.bekk mega taka með sér tvo gesti hver. Foreldrar nemenda í 8.-9. bekk geta keypt sig inn á skemmtiatriðin og sitja þá uppi á svölum. Aðgangseyrir fyrir nemendur og gesti 10.bekkinga er 2000 kr.  Aðgangseyrir á skemmtiatriðin ein og sér (fyrir foreldra 8. og 9.bekkjar) er 1000 kr. Ekki er ætlast til að börn yngri en nemendur á unglingastigi komi á árshátíðina þannig að yngri systkini geta ekki verið gestir 10.bekkinga. Skipulag árshátíðar er með eftirfarandi sniði: kl. 17.45                               Rúta fer frá Torginu Siglufirði kl. 17.45                               Húsið opnar kl. 18.15                               Borðhald hefst kl. 19.30                               Skemmtidagskrá hefst kl. 21.00                               Diskó hefst -  Plötusnúður í boði Neon kl. 22.30                               Diskói lýkur – Rúta til Siglufjarðar  
Lesa meira

Jafnréttisáætlun

Jafnréttisáætlun Grunnskólans var samþykkt á starfsmannafundi 18. apríl sl. og er hún nú komin á heimasíðuna. Hægt er að sjá hana hér. Fundagerðir skólaráðs eru einnig birtar hér á heimasíðunni en þær er hægt að nálgast hér.
Lesa meira

Fjölmenni á Stórsýningardegi

Það er óhætt að segja að skólahúsin hafi iðað af lífi síðasta laugardag en þá sýndu nemendur afrakstur vinnu sinnar þennan veturinn á hinum árlega Stórsýningardegi. Fjölmargir bæjarbúar lögðu leið sína í skólann til að skoða glæsilega muni og myndir sem búið var að stilla upp. Einnig voru ýmis önnur námstengd verkefni til sýnis og yngri bekkirnir buðu upp á atriði í sínum stofum.  Vandaðar teikningar frá nemendum eldri deildar Smíðamunir og handvinna frá 3. og 4. bekk
Lesa meira

Akstur á morgun sýningadag

Frá Grunnskólanum Ólafsfirði kl. 10.45 Frá Grunnskólanum Norðurgötu Sigufirði kl. 11.45 Frá Grunnskólanum Ólafsfirði kl. 12.05 Frá Grunnskólanum Norðurgötu Siglufirði kl. 12.45 Frá Grunnskólanum Ólafsfirði kl. 14.45  
Lesa meira

Sýningardagur nemenda

Sýningardagur nemenda Grunnskóla Fjallabyggðar 2013   Næstkomandi laugardag 11. maí verður haldin sýning á verkum nemenda Grunnskóla Fjallabyggðar.   Sýnt verður í skólahúsinu við:   Norðurgötu,  Siglufirði  kl. 11-13  Tjarnarstíg,  Ólafsfirði   kl. 13-15     Allir velkomnir skólastjóri
Lesa meira

Slysavarnakonur afhenda nemendum í 1. og 2. bekk endurskinsvesti

Ólöf Kristín umsjónarkennari í 1. og 2. bekk, Olga Gísladóttir, Jónína Kristjánsdóttir ásamt nemendum í 1. og 2. bekk. Guðný Ágústsdóttir tók nokkra  myndir í skólanum hjá okkur í dag og hægt er að sjá þær hér. Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við Alcoa Fjarðarál, Dynjanda ehf, EFLA verkfræðistofu, Eflingu stéttafélag, HB Granda, Isavia, Landsvirkjun, Neyðarlínuna, Tryggingamiðstöðina, Umferðarstofu og Þekkingu, gefa þessa dagana öllum skólum á landinu endurskinsvesti til að nota í vettvangsferðum barna í 1. bekk. Um 4500 börn eru í árganginum á landinu öllu. Þema þessa verkefnisins er „Allir öruggir heim“ því öll eigum við rétt á því að koma örugg heim og  á það ekki síst við um þau sem eru að hefja skólagöngu sína. Vettvangsferðir eru rótgróinn hluti af skólastarfi. Til að tryggja öryggi nema meðan á þeim stendur er mikilvægt að þeir séu vel sýnilegir.  Ökumenn sjá einstaklinga með endurskin fimm sinnum fyrr en þá sem eru ekki með neitt. Vestin eru af vandaðri gerð og er það von þeirra sem að átakinu standa að þau nýtist skólunum næstu árin.  Endurskinsvesti ætti að nota allt árið um kring. Það er von allra sem að verkefninu koma að það verði til þess að auka öryggi barna í umferðinni.
Lesa meira

Afmælisnefnd Sparisjóðsins afhenti styrk í tilefni af 140 ára afmæli Sparisjóðs Siglufjarðar.

Í dag veittu fulltrúar nemenda í unglingadeild styrk viðtöku að upphæð kr. 100.000 frá Sparisjóði Siglufjarðar.  Afmælisnefnd Sparisjóðsins afhenti styrkinn í tilefni af 140 ára afmæli Sparisjóðs Siglufjarðar. Grunnskóli Fjallabyggðar þakkar stuðninginn við ferð nemenda á Skólahreystikeppnina í Reykjavík fimmtudag 2. maí sl.   Það er ánægjulegt fyrir skólann að hafa átt lið í þeirri keppni og mikilvægt  að geta fylgt því eftir með stuðningsmannaliði. Stuðningur Sparisjóðs Siglufjarðar og fleiri aðila í Fjallabyggð gerður það mögulegt.  
Lesa meira

Sýningadagur nemenda

Sýningardagur nemenda Grunnskóla Fjallabyggðar 2013   Næstkomandi laugardag 11. maí verður haldin sýning á verkum nemenda Grunnskóla Fjallabyggðar.   Sýnt verður í skólahúsinu við:   Norðurgötu,  Siglufirði  kl. 11-13  Tjarnarstíg,  Ólafsfirði   kl. 13-15     Allir velkomnir skólastjóri
Lesa meira