Fjölmenni á Stórsýningardegi

3.og 4. bekkur á Siglufirði söng tvö lög fyrir gesti
3.og 4. bekkur á Siglufirði söng tvö lög fyrir gesti
Það er óhætt að segja að skólahúsin hafi iðað af lífi síðasta laugardag en þá sýndu nemendur afrakstur vinnu sinnar þennan veturinn á hinum árlega Stórsýningardegi. Fjölmargir bæjarbúar lögðu leið sína í skólann til að skoða glæsilega muni og myndir sem búið var að stilla upp. Einnig voru ýmis önnur námstengd verkefni til sýnis og yngri bekkirnir buðu upp á atriði í sínum stofum.  Vandaðar teikningar frá nemendum eldri deildar Smíðamunir og handvinna frá 3. og 4. bekk Nemendur 9. bekkjar voru með kaffisölu í báðum skólahúsum og þótti gestum gott að tylla sér og þiggja góðar veitingar að lokinni skoðunarferð. Ágóðinn af sölunni rennur í ferðasjóð bekkjarins.


storsyning_007.jpg
Þetta skemmtilega þorp bjó 1. og 2. bekkur til

storsyning_023.jpg
Glæsilegt mósaikborð unnið af nemanda í eldri deild

Fleiri myndir má sjá í myndaalbúmi hér að ofan.