Afmælisnefnd Sparisjóðsins afhenti styrk í tilefni af 140 ára afmæli Sparisjóðs Siglufjarðar.

Í dag veittu fulltrúar nemenda í unglingadeild styrk viðtöku að upphæð kr. 100.000 frá Sparisjóði Siglufjarðar.  Afmælisnefnd Sparisjóðsins afhenti styrkinn í tilefni af 140 ára afmæli Sparisjóðs Siglufjarðar. Grunnskóli Fjallabyggðar þakkar stuðninginn við ferð nemenda á Skólahreystikeppnina í Reykjavík fimmtudag 2. maí sl.   Það er ánægjulegt fyrir skólann að hafa átt lið í þeirri keppni og mikilvægt  að geta fylgt því eftir með stuðningsmannaliði. Stuðningur Sparisjóðs Siglufjarðar og fleiri aðila í Fjallabyggð gerður það mögulegt.