Skemmtileg árshátíð

Nemendur eldri deildar héldu árshátíð sína í Tjarnarborg í síðustu viku. Fór hún vel fram og gestir skemmtu sér vel. Matarnefndin útbjó glæsilegan veislumat sem rann ljúft niður og nemendur buðu uppá skemmtiatriði. Mesta athygli vakti fjölmenn hljómsveit sem flutti lagið Little talks með miklum bravúr, hljómsveitin Of Monsters and Men hefur gert lagið frægt. Myndbönd með stuttum atriðum voru annars uppistaðan í skemmtidagskránni. Að lokum var stiginn dans og var mikið fjör á dansgólfinu.