30.05.2012			
	
		Í gær komu saman allar deildir skólans og skemmtu sér við Hól og í skógræktinni á Siglufirði. Farið var í ýmsa
leiki og þrautir og í hádeginu grillaði Foreldrafélagið fyrir nemendur. Veðrið lék við okkur og óhætt er að segja að
dagurinn hafi tekist vel. Myndir eru komnar inn á myndasíðuna og hægt er að sjá þær hér.
Kennslu þetta skólaárið er nú lokið en á morgun er starfsdagur og á föstudaginn skólaslit.  (sjá nánar hér) 
Við minnum svo á fundinn hjá Foreldrafélaginu á morgun kl 18:00 og þökkum fyrir veturinn
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					31.05.2012
						
	
		Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar verður haldinn   fimmtudaginn  31.
maí  í skólahúsinu Ólafsfirði og hefst kl. 18. Eftirtaldir foreldrar gefa áfram kost á sér í stjórn:  Auður
Eggertsdóttir, Berglind Birkisdóttir,  Hrönn Gylfadóttir, Kristján Hauksson  og Rut Viðarsdóttir. Einn vantar  í stjórn og
gefur Sigurður Ægisson gefur kost á sér í hana.
Dagskrá fundarins eru  skv. 6. grein laga foreldrafélagsins.
1.    Kosning fundarstjóra og fundarritara
2.    Skýrsla stjórnar
3.    Reikningar lagðir fram til samþykktar
4.    Kosning formanns foreldrafélags og annarra stjórnarmanna
5.    Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
6.    Kosning fulltrúa í skólaráð samkvæmt starfsreglum félagsins
7.    Önnur mál
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					29.05.2012			
	
		 Kl. 11.00         Skólaslit fyrir 1.-7. bekk við Tjarnarstíg fara fram í
íþróttahúsinu Ólafsfirði
Kl. 13.00        Skólaslit fyrir 1.-7. bekk við Norðurgötu fara fram í íþróttasalnum Norðurgötu
Kl. 17.00        Skólaslit unglingadeildar fara fram í Siglufjarðarkirkju. Þar fer fram útskrift nemenda og afhending einkunna
 8. og 9. bekkinga.
Skólarútan fer frá íþróttahúsinu Ólafsfirði kl. 16.40 og til baka að athöfn lokinni eða um klukkan 18.
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					25.05.2012			
	
		
Nú á síðustu dögum skólaársins er ýmislegt skemmtilegt gert til að stokka upp kennsluna og höfum við gjarnan nýtt okkur
góða veðrið til útikennslu. Nemendur eru margir hverjir að fara í lengri og skemmri ferðir með foreldrahópunum eða kennurum og njóta
þess sem nágrennið okkar hefur upp á að bjóða.
Einnig var hjóladagur haldin á yngra stiginu á Siglufirði þar sem nemendur þreyttu ýmsar þrautir á hjólum sínum.
kennarar og starfsfólk á yngra stiginu á Ólafsfirði átti hörku fótboltaleik við 7. bekk undir glymjandi hvatningarorðum frá yngri
bekkjunum. Við kennarar viljum taka fram að það eru ekki úrslitin sem skipta máli heldur leikgleðin. Úrslit verða því ekki gefin upp
:)
10. bekkur hefur lokið starfkynningu sinni og skemmtir sér um þessar mundir  í útskriftarferð sinni.
8. og 9. bekkur gistu báðir í bústöðunum á Hótel Brimnesi og áttu þar góðar stundir saman.
Ýmislegt fleira hefur verið gert undanfarna daga og framundan er þriggja daga helgi og á þriðjudaginn verðum við svo með hamagang á
Hóli.  Myndir af starfinu undanfarið má sjá  hér.
 
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					23.05.2012			
	
		Nú styttist óðfluga í að nemendur 10. bekkjar ljúki grunnskólagöngu sinni. Þeir hafa nú þegar lokið hefðbundnu námi
og síðustu tvær vikur hafa þeir verið við annarskonar nám. Allir nemendur bekkjarins sátu þriggja daga skyndihjálparnámskeið og
að því loknu var komið að starfskynningum. Nemendur kynntu sér hinu ýmsu störf í sveitarfélaginu, hver nemandi heimsótti tvö
fyrirtæki eða stofnanir og dvaldi í tvo daga á hvorum stað. Þakkar skólinn sérlega góð viðbrögð vinnuveitenda við
óskum um nemendaheimsóknir.
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					24.05.2012
						
	
		Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldin fimmtudaginn 31. maí kl. 18 við Tjarnarstíg.
Hvetjum alla til að mæta.
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					17.05.2012			
	
		Næstkomandi laugardag verður sýning á verkum
nemenda í skólahúsinu við Tjarnarstíg Ólafsfirði og við Norðurgötu Siglufirði, frá  klukkan  11.00 til 14.00. Verk nemenda
í unglingadeild verða til sýnis í íþróttasalnum við Norðurgötu. Um er að ræða skóladag hjá öllum nemendum
þ.a. þeir mæta í skólann nema um annað hafi verið samið.
Akstur skólabíls verður þennan dag sem hér segir:
kl. 10.45  frá íþróttahúsinu  Ólafsfirði til Siglufjarðar
kl. 12.00 frá torginu Siglufirði til Ólafsfjarðar
kl. 12.45 frá íþróttahúsinu  Ólafsfirði til Siglufjarðar
kl. 14.15 frá torginu Siglufirði til Ólafsfjarðar
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					16.05.2012			
	
		Núna þegar líður að skólalokum hafa fjölmargir bekkir verið með bekkjarkvöld. Nemendur yngri bekkjanna hafa boðið fjölskyldum
sínum í skólann og verið með fjölbreytt skemmtiatriði fyrir gestina; söng, dans, leikþætti og ýmislegt fleira sem nemendur hafa æft
undanfarnar vikur. Að lokinni skemmtidagskránni hefur verið farið í leiki og síðan boðið upp á veitingar.
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
		
				
			
					14.05.2012			
	
		Síðastliðin föstudag heimsótti háskólalestin unglingastigið og voru eftirtaldar háskólagreinar kenndar á unglingastigi:
Japanska, tómstunda- og félagsmálafræði, næringarfræði, efnafræði, jarðafræði og nýsköpun. 
Myndir af þvi eru komnar inn á myndasíðuna og hægt að sjá þær hér.
Lesa meira
		
	 
 
	
		
		
				
			
					12.05.2012
						
	
		
Vísindaveisla í félagsheimilinu Tjarnarborg, Ólafsfirði
• Vísindaveisla í félagsheimilinu Tjarnarborg
• Sprengjugengið landsfræga sýnir kl. 12.30 og 14.30
• Eldorgel og sýnitilraunir
• Japönsk menning
• Tæki og tól
• Furðuspeglar og snúningshjól
• Undur jarðar
• Leikir, þrautir og uppákomur
Stjörnutjald í Íþróttahúsinu kl 13 til 16,
sýningar á hálftíma fresti
Dagskrá Háskólalestar er öllum opin, aðgangur
ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
www.haskolalestin.hi.is
Háskóli unga fólksins 11. maí
Föstudaginn 11. maí sækja nemendur eldri deildar
Grunnskólans í Fjallabyggð námskeið í Háskóla unga
fólksins í efnafræði, jarðfræði, næringarfræði,
tómstundafræði, japönsku og frumkvöðlafræði.
Lesa meira