31.05.2012
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar verður haldinn fimmtudaginn 31.
maí í skólahúsinu Ólafsfirði og hefst kl. 18. Eftirtaldir foreldrar gefa áfram kost á sér í stjórn: Auður
Eggertsdóttir, Berglind Birkisdóttir, Hrönn Gylfadóttir, Kristján Hauksson og Rut Viðarsdóttir. Einn vantar í stjórn og
gefur Sigurður Ægisson gefur kost á sér í hana.
Dagskrá fundarins eru skv. 6. grein laga foreldrafélagsins.
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Kosning formanns foreldrafélags og annarra stjórnarmanna
5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
6. Kosning fulltrúa í skólaráð samkvæmt starfsreglum félagsins
7. Önnur mál