Vinsamleg tilmæli til foreldra.

Þetta eru vinsamleg tilmæli til foreldra nemenda í 1.-5. bekk sem ferðast með skólabíl. Að gefnu tilefni er hvatt til þess að nemendur mæti í skólabílinn við skólahúsið í Ólafsfirði, öryggisins vegna. Töluverð hætta getur stafað af umferð við biðskýlið í Aðalgötu þegar margir safnast saman í skýlinu.