Viðbrögð við jarðskjálfta

Þar sem almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi  vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi var farið yfir fyrstu viðbrögð við jarðskjálfta með nemendum í morgun. Þar var helst lagt áherslu á eftirfarandi :

Viðbrögð við jarðskjálfta
Innandyra 
Við jarðskjálfta getur verið hættulegt að hlaupa út úr byggingu. Reyndu frekar að leita skjóls og vera kyrr á öruggum stað innandyra t.d. út  í horni við  burðarveggi fjarri gluggum. Ef þú er sofandi og vaknar upp við jarðskjálfta, haltu þá kyrru fyrir og notaðu  kodda til að verja höfuðið.  Ef það verður jarðskjálfti hafið þá eftirfarandi í huga:
Húsgögn
Varist húsgögn sem geta hreyfst úr stað.
Innihald skápa
Varist hluti sem detta úr hillum og skápum, sérstaklega í eldhúsi.
Ofnar og kynditæki
Haldið ykkur fjarri ofnum og kynditækjum sem hendast út af festingum.
Lyftur 
Notið ekki lyftur og látið fara yfir þær eftir að jarðskjálfti hefur orðið þar sem lyftur skekkjast oft í jarðskjálfta. 
Rúðbrot
Varist stórar rúður sem geta brotnað.
Byggingarhlutar
Við jarðskjálfta geta hlutar úr byggingunni brotnað af. Haldi ykkur fjarri þeim stöðum í húsinu þar sem hætta er á hrynjandi byggingahlutum.
 
Gott er að setja á minnið orðaröðina:  KRJÚPA – SKÝLA - HALDA
 
Gæta þess að verða ekki fyrir hlutum sem kunna að falla, með því m.a. að:
 

Fara út í horn burðarveggja, KRJÚPA þar, SKÝLA höfði og HALDA sér ef unnt er

Fara út í horn burðarveggja, KRJÚPA þar, SKÝLA höfði og HALDA sér ef unnt er.

Fara í opnar dyr, KRJÚPA þar, SKÝLA höfði og HALDA sér í karm.

Fara í hurðarop, KRJÚPA þar, SKÝLA höfði og HALDA sér.

 

Fara undir borð, KRJÚPA þar skýla sér og halda í borðfót.

Fara undir borð, KRJÚPA þar, SKÝLA og HALDA í borðfót.