Vegna óveðurs

Ágætu foreldrar/forráðamenn.


Vegna slæms veðurútlits hefur verið ákveðið að síðustu ferðir skólabíls í dag verði frá Siglufirði kl. 12.40 og til baka frá Ólafsfirði kl. 13.15. Nemendur í 5. -10. bekk fara heim þegar skólaakstri lýkur.

Gæsla verður til klukkan 16:00 í heimaskóla  þeirra barna sem sækja Frístund og Lengda viðveru. Foreldrar eru hvattir til að sækja yngstu börnin í skólann.

Jólaföndur sem vera átti í dag  fyrir 4. – 6. bekk fellur einnig niður vegna veðurs. Það verður miðvikudaginn 5. desember kl. 18.00

Með kveðju.

Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri