Uppbyggingardagur s.l. þriðjudag

Síðastliðinn þriðjudag var uppbyggingardagur í skólanum okkar og að þessu sinni var áhersla lögð á góða siði í matsalnum. Nemendur unnu blóm og púslur með ábendingum um viðeigandi setningar og hegðun sem þeir vilja notast við í matsalnum. Þetta mun síðan skreyta matsalinn okkar sem blómabeð. Fleiri myndir frá deginum má sjá hér.