Takk fyrir komuna

Mjög margir lögðu leið sína á skólasýninguna sl. miðvikudag til að sjá hvað nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar hafa verið að vinna í vetur. Krakkarnir buðu upp á skemmtiatriði, dans, söng og voru með kynningar á verkefnum. Margir bæjarbúar hafa það að venju að líta inn í skólann á þessum degi og fylgjast þannig með starfinu í skólanum og um leið að styrkja 9. bekk sem var með kaffisölu. Á myndinni sést lítið brot af verkefnum í unglingadeildinni.