Söngvasyrpa leikhópsins Lottu

Leikhópurinn Lotta var með sýningu fyrir leikskólabörn og nemendur okkar í 1.-4. bekk í Tjarnarborg  í morgun.

Söngvasyrpa Leikhópsins Lottu hefur heldur betur slegið í gegn á hátíðum af öllum stærðum og gerðum. Syrpan er í raun brot af því besta sem hópurinn hefur gert í gegnum árin og fara nokkrar vel valdar persónur með áhorfendur í smá ævintýraferðalag. Söngvasyrpan er hlaðin frábærum lögum, skemmtilegum Lottu húmor og að sjálfsögðu stuði fyrir allan aldur.