Skólasetning fer fram í dag

Skólasetning fer fram í dag miðvikudaginn 23. ágúst 2017, stundaskrár og ritföng verða afhent.
Nemendur 1. bekkjar mæta í boðuð viðtöl til umsjónarkennara.
Nemendur í 2.-5. bekk mæta í skólahúsið á Siglufirði kl. 11.00. Skólabíll fer frá Ólafsfirði kl. 10.40 og til baka að lokinni skólasetningu.
Nemendur í 6.-10. bekk mæta kl. 13.00 í skólahúsið í Ólafsfirði. Skólabíll fer frá Siglufirði kl. 12.40 og til baka að lokinni skólasetningu.


Frístund
Nemendum í 1.-4. bekk stendur til boða að sækja Frístund að loknum skóladegi kl. 13.30-14.30. Frístund er tómstundastarf skipulagt af Fjallabyggð í samstarfi við tónlistarskóla, grunnskóla og íþróttafélög. 


Lengd viðvera
Nemendur í 1.-3. bekk hafa möguleika á að sækja lengda viðveru kl. 14.30-16.00.