Skólaakstur haustið 2017

Verið er að ganga frá samningi við Hópferðabíla Akureyrar  um skóla- og frístundaakstur næstu þriggja ára. Núgildandi samningur er til 31.ágúst n.k. 

Samkvæmt útboði Fjallabyggðar á skólaakstri verða sæti með þriggjafestu mjaðmar- og axlarbeltum og yngstu nemendur munu sitja á bílsessu.  Samkvæmt reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja þurfa hópferðabifreiðar aðeins að vera með tveggja festu bílbeltum og eru stórar rútur í skólaakstri almennt búnar slíkum öryggisbúnaði. Til að fyrirtækið geti uppfyllt ítarlegri öryggiskröfur Fjallabyggðar á öryggisbúnaði í skólarútu þarf að skipta um sæti. Þar sem panta þarf ný rútusæti erlendis frá er ljóst að á fyrstu vikum skólaárs verður skólabíllinn ekki búinn þriggja festu öryggisbeltum. HBA og Fjallabyggð munu hraða þessari framkvæmd eins og kostur er. Bílsessur koma í hús í þessari viku. 

Skólaliði verður starfandi í skólarútunni eins og verið hefur. 

Tímatafla skólaaksturs liggur fyrir og er hún eftirfarandi: