Samræmd próf standa yfir

Þessa vikuna standa samræmd próf yfir í skólanum. Nemendur 10. bekkjar luku sínu þriðja og síðasta prófi í dag en þeir þreyttu próf í íslensku, ensku og stærðfræði. Næstu tvo daga munu nemendur í 4. og 7. bekk taka sín próf í íslensku og stærðfræði.