Kennarar úr Rödebyskola í Karlskrona, Svíþjóð heimsækja Grunnskóla Fjallabyggðar

Síðastliðna viku hafa verið hjá okkur kennarar frá Rödebyskola í Karlskrona, Sviþjóð. Þeir fengu að fylgjast með skólastarfinu og kynnast íslenskri skólamenningu. Meðfylgjandi myndir eru teknar í mjög svo skemmtilegum útivistartíma sem íþróttakennarinn Ómar stjórnaði.