Ritföng fyrir nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar skólaárið 2017-2018

Grunnskóli Fjallabyggðar afhendir nemendum ritfangapakka að gjöf frá sveitarfélaginu við skólabyrjun haustið 2017. Ætlast er til að nemendur í 1.-5.bekk geymi og noti umrædd ritföng í skólanum og til þess fá þau litla hvíta plastkörfu. Nemendum í 6.-10.bekk verður falið að halda utan um þessi ritföng sjálf. Glatist eða skemmist þessi ritföng þurfa foreldrar að útvega ný í staðinn. Ritfangapakkinn er svipaður milli árganga og felur í sér skriffæri, stíla- og reikningsbækur, skæri, teygjumöppu, tréliti, reglustikur o.s.frv. eftir þörfum hvers árgangs. Það sem ekki er í ritfangapakkanum þurfa foreldrar að útvega. Sjálfsagt er að nota það sem til er frá fyrri árum. Eftirfarandi gögn þurfa foreldrar að útvega:

1.-2.bekkur:

1 stk traust tímaritabox (ekki plastbox, það skemmir bækur)

3.-4.bekkur:

1 stk traust tímaritabox (ekki plastbox, það skemmir bækur)

Harðspjaldamappa m. 4 hringjum

Milliblöð í möppu (5 hólf)

5.-7.bekkur:

Vasareiknir

Föndurskæri

1 stk traust tímaritabox (ekki plastbox, það skemmir bækur)

Harðspjaldamappa

Milliblöð í möppu (10 hólf)

3 stk A4 plastmappa (með glærri forsíðu)

 

8.-10.bekkur:

Vasareiknir

Hringfari (sirkill)

1 stk traust tímaritabox (ekki plastbox, það skemmir bækur)

5 stk A4 plastmappa (með glærri forsíðu)

 

Ef frekari upplýsinga er þörf má hafa samband við stjórnendur í netföngin: jonina@fjallaskolar.is og rikey@fjallaskolar.is