Pakkað inn jólagjöfum með Önnu Hermínu

Undanfarið hafa nemendur í 1.-5. bekk úbúið jólakort á meðan nemendur á miðstigi hafa útbúið jólapappír. Í morgun kom svo Anna Hermína með yfir 100 jólagjafir sem hún hefur safnað og var þeim pakkað inn í morgun. Jólagjafirnar færir hún síðan fjölskylduhjálp kirkjunnar. Hægt er að sjá myndir frá innpökkuninni í morgun hér.