Norræna skólahlaupið.

S.l fimmtudag hljóp unglingastigið hið árlega Norræna skólahlaup. Þátttaka og áhugi nemenda var til fyrirmyndar og hér fyrir neðan má sjá niðurstöður hlaupsins. 8. bekkur hljóp 8.4 km á hvern nemenda 9. bekkur hljóp 7.8 km á hvern nemenda 10. bekkur hljóp 6.8 km á hvern nemenda Yngri bekkirnir hlupu sitt Norræna skólahlaup í ratleiknum í síðustu viku svo allir nemendur skólans tóku þátt í hlaupinu. Markmið - með norræna skólahlaupinu er leitast við: Að hvetja nemendur til þess að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu Að kynna og skýra nauðsyn þess að hreyfa sig, reyna á líkama sinn og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan