- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
- Matseðill og skráning í mat
Kæru íbúar Fjallabyggðar
Mánudaginn næstkomandi, þann 26. september, ætla nemendur 6. - 10. bekkjar að hlaupa Ólympíuhlaup
ÍSÍ og láta í leiðinni gott af sér leiða. Nemendur eru að safna áheitum og ætla að styrkja þrjú verðug
málefni hér í Fjallabyggð sem eru þessi:
• Sigurboginn, styrktarfélag Sigurbjörns Boga Halldórssonar, 10 ára drengs með flókna fjölfötlun
• Noah Maricato Lopes, 7 ára dreng með Downs heilkenni
• Fjölskylda Elvíru Maríu Sigurðardóttur 2 ára stúlku sem glímir við bráðahvítblæði
Nemendur eru þessa dagana að safna áheitum en ef fólk vill leggja þessari áheitasöfnun lið en hefur ekki
skrifað undir hjá neinum nemanda þá má hafa samband við okkur í skólanum og við tökum við ykkar
framlagi og komum því áfram í söfnunina. Senda má póst á gudunn@fjallaskolar.is eða hringja í síma
464-9222.
Nemendur munu svo hlaupa um götur Ólafsfjarðar frá kl 12:15 mánudaginn 26. september, þið megið
endilega hvetja krakkana áfram ef þið rekist á þá.
Hér má sjá mynd af hlaupaleið:
Með von um góðar undirtektir ☺
Nemendur og starfsfólk Grunnskóla Fjallabyggðar
Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880