Nemendaráð skipuleggur leiki í frímínútum á unglingastiginu.

Unglingastigið hefur fengið afnot af íþróttasalnum v/Norðurgötu í löngu frímínútum til þess að fara í leiki. Nemendaráð hefur skipulagt hvaða leikir verða hverju sinni. Nemendur eru duglegir að koma í salinn og skemmta sér saman. Hér er hægt að sá nokkrar myndir úr frímínútum í síðustu viku.