Námskeiðið börn og umhverfi

Nemendur í 6. og 7. bekk
Nemendur í 6. og 7. bekk
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 6. og 7. bekk verið á námskeiðinu Börn og umhverfi hjá umsjónarkennurum sínum, hjúkrunarfræðingi og skyndihjálparkennara ásamt því að fara í vettvangsferð á slökkvistöðina. Á námskeiðinu lærðu þau um aldur og þroska barna, hættur og öryggi, umönnun barna, slysavarnir og skyndihjálp.  Í morgun kom svo Ingibjörg frá Rauða krossinum á Akureyri og veitti nemendum viðurkenningu fyrir námskeiðið.