Lögreglan heimsækir nemendur við Tjarnarstíg

Í morgun heimsótti lögreglan nemendur við Tjarnarstíg. Það var Jón Konráðson sem fræddi nemendur um umferðaröryggi og nemendur hlustuðu á af mikilli athygli enda nauðsynlegt að þekkja allar reglur vel. Meðfylgjandi myndir voru teknar af fræðslulestrinum hjá 7. bekk.