Leiklistahópurinn sýnir leikritið Íris

Leiklistarhópurinn mun frumsýna leikritið Iris í vikunni 28. mars - 1. apríl. Leikritið er framlag Grunnskóla Fjallabyggðar í verkefninu Þjóðleikur sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og grunnskóla á Norðurlandi. Í framhaldinu verður boðið upp á opnar sýningar á verkinu. Helgina 1. - 3. apríl mun hópurinn fara til Akureyrar og sýna á leiklistarhátið þar sem allir skólar á Norðurlandi sem taka þátt í verkefninu Þjóðleik sýna verk sín.