Leikhúsferð 4. og 5. bekkjar

Föstudaginn 28. janúar býður Rarik nemendum í 4. og 5. bekk að sjá sýninguna Bláa gullið á Akureyri.  Út frá sjónarhorni trúðsins er vatn skoðað á einlægan en trúðslegan hátt. Hvert ætli sé eðli vatns? Hvað er svona merkilegt við það? Hvað er úthaf og hvað er tár, hvað er foss og regn? Hvaðan kemur vatn og hvert fer það? Trúðnum er ekkert óviðkomandi og hann hikar ekki að leggja fram spurningar og vangaveltur um allt milli himins og jarðar.

Trúðarnir halda í rannsóknarleiðangur um undraheima vatnsins sem endalaust er hægt að skoða, undrast og skemmta sér yfir. Ragnhildur Gísladóttir tónlistarmaður og Gjörningaklúbburinn skapa sýningunni töfrandi umgjörð með nýstárlegri hjóð- og sviðsmynd. Sýningin er fræðandi og forvitnileg fyrir pælandi unglinga, en fyrst og fremst bráðskemmtileg trúðasýning fyrir alla fjölskylduna.

Höfundar Charlotte Böving, María Pálsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Víkingur Kristjánsson
Leikstjóri Charlotte Böving
Leikmynd & búningar Íslenski gjörningaklúbburinn
Tónlist Ragnhildur Gísladóttir
Sýningarstjórn Hlynur Páll Pálsson
Leikarar María Pálsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Víkingur Kristjánsson