- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
- Matseðill og skráning í mat
Lausar stöður við Grunnskóla Fjallabyggðar
Grunnskóli Fjallabyggðar leitar að liðsauka í frábæran hóp starfsmanna skólans. Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir til að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag af dugnaði og atorku samkvæmt gildandi fræðslustefnu, með virðingu, metnað og gleði að leiðarljósi.
Grunnskóli Fjallabyggðar er ríflega 200 nemenda skóli með starfsstöðvar í Ólafsfirði og á Siglufirði. Nánari upplýsingar um skólann má finna á http://grunnskoli.fjallabyggd.is/ Nánari upplýsingar um Fjallabyggð er að finna á heimasíðunni www.fjallabyggd.is
Gildi skólasamfélagsins í Fjallabyggð eru: Kraftur – Sköpun – Lífsgleði
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar:
Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2022.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi fagfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ástamt upplýsingum um tvo umsagnaraðila.
Umsóknum skal skila á netfangið erlag@fjallaskolar.is Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda i sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fjallabyggð áskilur sér rétt til að hætta við ráðningu í einstaka stöðu og/eða auglýsa að nýju.
Upplýsingar um störfin veitir Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar í gegnum netfangið erlag@fjallaskolar.is eða síma 865-2030.
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2022
Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880