- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
Vegna forfalla eru laus 100% staða skólaliða við Grunnskóla Fjallabyggðar, Tjarnarstíg.
Um er að ræða afleysingu út skólaárið með möguleika á áframhaldandi starfi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfið er fjölbreytt, þar sem mikil áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við börn og fullorðna. Skólaliði sinnir almennum þrifum tekur á móti nemendum að morgni, sér um gæslu í frímínútum, bæði úti og inni og margt fleira.
Vinnutími er frá 8:00 – 16:00.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsókn um starfið ásamt upplýsingum um fyrri störf ásamt nafni meðmælanda skal skilað í tölvupósti á netfang Ásu Bjarkar Stefánsdóttur skólastýru, asabjork@fjallaskolar.is
Umsækjendur þurfa að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar fást hjá skólastýru í síma 464-9150 eða 695-9998
Gildi skólasamfélagsins í Fjallabyggð eru: Kraftur – Sköpun – Lífsgleði
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2024.
Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880