Krakkakosningar 2024 -úrslit

Krakkakosningar 2024 - úrslit
Krakkakosningar 2024 - úrslit
Fimmtudaginn 23. maí hélt 3. bekkur Krakkakosningar. Krakkakosningar eru samstarfsverkefni umboðsmanns barna og KrakkaRÚV. Krakkakosningar fara fram í tengslum við forsetakosningar sem fara fram þann 1. júní nk.
 
3. bekkur bauð 1. - 7. bekk að koma og taka þátt í Krakkakosningum með sér. 135 nemendur í Grunnskóla Fjallabyggðar tóku þátt og greiddu atkvæði í kosningunum. Nemendur í 3. bekk útbjuggu kjörkassa og kjörklefa ásamt því að standa vörð á kjörstað með því að taka niður nöfn þeirra sem kusu og afhenda kjörseðla.
 
Þátttaka í árgöngunum var um 89% og vann Jón Gnarr kosningarnar með 40 atkvæðum. Allir nemendur tóku virkan þátt og eiga sannarlega framtíð í heimi kosninganna.