Í lok skólaárs 2023

Gleðilegt sumar
Gleðilegt sumar

Að vanda var nóg um að vera á lokadögum skólaársins okkar hér í Grunnskóla Fjallabyggðar. Eitt af því sem hefur fest sig í sessi á vordögum er fótboltaleikur 7. bekkjar við starfsfólk skólans sem fór fram þann 31. maí. Mikil barátta var í leiknum og þegar leiktíminn rann út var staðan 4-4. Þá tók við vítaspyrnukeppni og stóðu starfsmenn uppi sem sigurvegarar.

Hér má sjá fleiri myndir frá fótboltaleiknum: Fótbolti 2023 7.b./starfsfólk

 

Þann 31. maí var leikja- og útivistardagur hér hjá okkur þar sem nemendur og starfsfólk nutu útiveru á þessum síðasta skóladegi ársins.

Hér má sjá fleiri myndir frá leikja- og útivistardeginum: Útivistardagur að vori

 

Skólaslit 1. - 7. b.  var 2. júní og skólaslit  8. - 10. b. var 1. júní en þar voru 17 nemendur útskrifaðir frá okkur.  Við óskum útskriftarnemendum velfarnaðar í þeim verkefnum sem þeir taka sér fyrir hendur í framtíðinni.

Hér má sjá fleiri myndir frá skólaslitum og útskrift 10. bekkinga: Skólaslit 1. - 9. bekkjar og útskrift 10. b.

 

Hér má sjá vefslóð á myndband þar sem nemendur í 1. - 5. sungu nokkur lög á skólaslitunum: 1. - 5. bekkur söngur á skólaslitum

 

Við stjórnendur skólans óskum nemendum, foreldrum og starfsfólki gleðilegs sumars með von um að það verði ykkur öllum gott og endurnærandi.