Hjólað í skólann

Nokkrir krakka úr 6. og 7. bekk komu hjólandi langa leið í skólann í morgun. Þessir nemendur eru allir búsettir á Siglufirði og komu hjólandi til Ólafsfjarðar ásamt fylgdarmanni. Ferðin tók um 55 mínútur og verður örugglega endurtekin að þeirra sögn.