- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
- Matseðill og skráning í mat
Fyrir páskafrí fengum við góða heimsókn til okkar hingað í skólann. Það var hún Íris Tanja Flygenring sem kom á vegum Samtakanna 78 og heimsótti nemendur í 4. -10. bekk auk þess sem hún hélt fræðsluerindi fyrir starfsfólk skólans. Um kvöldið var svo fræðsla fyrir foreldra. Í heimsókninni fjallaði Íris um hinseginleika, hvað það þýðir að vera hinsegin og hvert sé hægt að leita fyrir stuðning og aðstoð. Í lok hverrar fræðslu var opnað fyrir nafnlausar spurningar og þeim svarað eftir bestu getu. Heimsóknin tókst mjög vel og voru nemendur opnir og jákvæðir og sköpuðust oft góðar umræður í bekkjunum. Við þökkum Írisi og samtökunum kærlega fyrir komuna.
Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880