Nemendur 10. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar unnu Fjármálaleikana 2025

Nemendur í 10. bekk, Sigurlaug Ragna stærðfræðikennari, Tinna, María Petra og Ingi Steinar.
Nemendur í 10. bekk, Sigurlaug Ragna stærðfræðikennari, Tinna, María Petra og Ingi Steinar.
Nemendur 10. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar fóru með sigur af hólmi í Fjármálaleikunum, landskeppni grunnskólanna í fjármálalæsi, þar sem vel á annað þúsund grunnskólanemendur keppa í grunnskólum um allt land. Skólinn mun senda tvo fulltrúa til að keppa fyrir Íslands hönd í Evrópukeppninni í fjármálalæsi í Brussel í maí.
 
Í dag komu Ingi Steinar, María Petra og Tinna fyrir hönd fjármálafyrirtækja og veittu nemendum verðlaunin sem eru farandbikar og 200.000 kr peningaverðlaun.
 
Fjármálaleikarnir er spurningakeppni í fjármálalæsi og snúast spurningarnar m.a. um að geta reiknað vexti á lán og sparnað, að vita um hvað tryggingar snúast, þekkja réttindi og skyldur á vinnumarkaði, átta sig á lífeyrissparnaði og kunna ýmislegt um t.d. gengissveiflur og verðlagsþróun.
Sjá nánar á www.fjarmalavit.is
 
Frábær árangur hjá þessum frábæru krökkum.