Grunnskóli Fjallabyggðar lenti í 3. sæti í Skólahreysti

Tómas, Viktor, Svava, Silja, Ólöf og Árni
Tómas, Viktor, Svava, Silja, Ólöf og Árni

Skólahreysti var haldin í íþróttahöllinni á Akureyri í gær 30. apríl kl. 17 og var keppnin sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Keppendur okkar voru þau Ólöf Elísabet Friðriksdóttir (hreystigreip og armbeygjur), Svava Rós Kristófersdóttir (hraðabraut), Árni Helgason (hraðabraut) og Viktor Máni Pálmason (upphýfingar og dýfur). Varamenn voru Silja Rún Þorvaldsdóttir og Tómas Ingi Ragnarsson. Nemendur unglingadeildar fóru með rútu á keppnina ásamt kennurum sínum og studdu liðið áfram. Keppnisliðið stóð sig frábærlega og endaði í 3. sæti.

Glæsilegur árangur hjá okkar nemendum og hér má sjá fleiri myndir frá gærdeginum.