Góð gjöf

Í dag barst skólanum gjöf frá fyrrum nemendum Grunnskóla Siglufjarðar, fæddum 1960. Þeir færðu skólanum Owerlook saumavél.

Maddý textílkennari tók við gjöfinni úr höndum Halldóru Björgvinsdóttur sem afhenti hana fyrir hönd árgangsins. Skólinn færir þessu góða fólki bestu þakkir og góðar kveðjur.