Frímínútur á skólabalanum

Það finna allir eitthvað við sitt hæfi í frímínútunum á Siglufirði. Miklar endurbætur voru gerðar í sumar og haust á lóðinni, ný  og spennandi leiktæki sett upp. Síðustu daga hefur skólabalinn verið eins og á sumardegi og öll leiktækin nýtt til hins ýtrasta. Næsta vor verður endurbótum lokið, þegar körfuboltavöllur verður settur upp.