03.04.2013
Fræðslufundur um geðheilbrigði barna og unglinga, nám og stýrifærni Foreldrar, afar, ömmur og aðrir aðstandendur barna og
unglinga í Fjallabyggð.
Miðvikudaginn 3. apríl nk. stendur félagsþjónusta Fjallabyggðar fyrir opnum fræðslufundi um geðheilbrigði barna og unglinga, nám og
stýrifærni í Ráðhúsinu á Siglufirði 2. hæð kl. 17:00.
Þar munu þeir Haukur Örvar Pálmason og Bóas Valdórsson sálfræðingar á Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans fjalla um geðheilbrigði barna og unglinga, áhrif ofvirkni og athyglisbrests á nám og starf og hvernig
mæta má þörfum barna og unglinga í skólastarfi og heima fyrir. Fræðslufundur verður
haldin fyrir starfsfólk Grunnskóla Fjallabyggðar fyrr um daginn.
Allir velkomnir
Félagsþjónusta Fjallabyggðar