Fræðslufundir um fjármál ungs fólks í Tjarnarborg 26. apríl kl 20:00

Fundurinn er ætlaður fyrir nemendur í 7.-10. bekk og verður haldinn í Tjarnarborg nk. þriðjudag 26. apríl kl. 20.00.

Rúta fer frá Siglufirði kl. 19:30.


Jón Jónsson, tónlistarmaður og hagfræðingur, mun í vor ferðast um landið á vegum Arion banka og fræða ungt fólk (12–16 ára) um fjármál á skemmtilegan hátt.

Á fundunum fer Jón yfir það hvernig peningar virka, mikilvægi þess að setja sér markmið og hvernig hægt er að láta peningana endast aðeins lengur.

Efnið er byggt á bókinni Ferð til fjár eftir Breka Karlsson, forstöðumann Stofnunar um fjármálalæsi.