Frábær árangur í stærðfræðikeppni FNV, MTR og 9. bekkjar

Úrslit stærðfræðikeppni Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og MTR í samstarfi fyrir 9.bekkinga á svæðinu fór fram í bóknámshúsi fjölbrautarskólans s.l. föstudag 2.maí. Björn Vilhelm Ólafsson, Sara María Gunnarsdóttir og Þorgeir Örn Sigurbjörnsson úr Grunnskóla Fjallabyggðar komust öll í úrslit og stóðu sig vel. Björn Vilhelm lenti í 1.sæti og hneppti þar með sigurinn af 170 nemendum sem upphaflega tóku þátt. Við óskum krökkunum öllum til hamingju með frábæran árangur og Birni Vilhelm til hamingju með sigurinn.