Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar

Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar var stofnað í gær fimmtudaginn 12. maí. Fundurinn var haldinn í skólahúsinu Ólafsfirði og sóttu hann tíu manns. Eftirtaldir foreldrar voru kosnir  í stjórn: Auður Eggertsdóttir, Rut Viðarsdóttir , Hrönn Gylfadóttir, Kristján Hauksson, Berglind Ýr Birkisdóttir og Gunnar Smári Helgason sem jafnframt var kosinn formaður félagsins. Er foreldrum barna í skólanum hér með óskað til hamingju með nýtt foreldrafélag.