Flottur skíðadagur yngri deildar á Sigló

Í gær fjölmenntu nemendur yngri deildarinnar á Sigló í Skarðið og áttu þar góða stund. Margir voru á skíðum en aðrir á sleðum og þotum og prufuðu jafnvel bretti.  Veðrið var eins og best verður á kosið og allir skemmtu sér ljómandi vel. Fleiri myndir má sjá á heimasíðum yngri bekkjanna.