Grunnskóli Fjallabyggðar komst áfram í Fiðringi

Stoltir keppendur (á myndina vantar Sindra Hafþór Halldórsson)
Stoltir keppendur (á myndina vantar Sindra Hafþór Halldórsson)

Fyrri undankeppni Fiðrings, hæfileikakeppni grunnskólanna á Norðurlandi, var haldin í Tjarnarborg í gær og áttum við 14 fulltrúa úr 8. - 10. bekk.  Auk okkar nemenda kepptu nemendur frá Hríseyjarskóla, Glerárskóla, Giljaskóla, Naustaskóla og Brekkuskóla. Þrjú atriði voru valin áfram til að taka þátt í úrslitakvöldinu sem fer fram í Hofi 25. apríl og er gaman að segja frá því að okkar nemendur komust áfram ásamt Glerárskóla og Giljaskóla. Atriðið okkar heitir Seinna er of seint og fjallar um áhrif hlýnun jarðar. Frábær árangur!

Seinni undankeppni Fiðrings var haldið í kvöld 19. apríl og þar kepptu Oddeyrarskóli, Síðuskóli, Lundarskóli, Þelamerkurskóli, Hrafnagilsskóli og Borgarhólsskóli. Þar voru einnig valin þrjú atriði sem taka þátt í úrslitakvöldinu. Dómarar velja síðan tvö atriði í viðbót (wildcard) þannig að átta skólar fara í úrslit.

Nemendur þátttökuskólanna hafa samið sitt eigið atriði og æft af kappi alla vorönnina undir handleiðslu leiðbeinanda þar sem mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og lýðræðisleg vinnubrögð. Nemendur sjá alfarið um listræna útfærslu hvað varðar búninga, leikmynd, sviðshreyfingar, ljós og hljóð.