Dagur gegn einelti

Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti hefur ákveðið að helga  8. nóvember ár hvert baráttunni gegn einelti.  Slíkur baráttudagur var fyrst haldinn árið 2011 og  markmiðið með deginum er og var  að vekja sérstaka athygli  á málefninu. Undirritun fulltrúa félaga, samtaka og opinberra stofnana á þjóðarsáttmála gegn einelti var þar einn liður. Sáttmálinn er einnig grunnur að frekari vinnu, Á vefsíðunni Í þínum sporum er hægt að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti. Með því að undirrita skuldbindum við okkur til að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar.