Byggingaframkvæmdir ganga vel

Framkvæmdir við nýbyggingu skólans við Norðurgötu ganga vel og eru á undan áætlun. Lítil sem engin truflun hefur orðið af framkvæmdunum og verða nemendur lítið varir við að verið sé að byggja við skólahúsið. Stefnt er að því að byggingin verði tilbúin næsta haust. Það er Tréverk á Dalvík sem sér um framkvæmdina. Fleiri myndir má sjá í myndaalbúmi.