Baldursbrá í Byrjendalæsi

Í dag fékk 1. og 2. bekkur við Norðurgötu skemmtilega heimsókn. Það var rit- og óperuhöfundurinn Gunnsteinn Ólafsson. Hann kynnti bókina sína, Baldursbrá fyrir krökkunum og sýndi nokkur atriði úr óperunni sem sýnd var í Hörpu á síðasta ári. Í næstu viku verður svo unnið með bókina í Byrjendalæsi, en í Byrjendalæsi er unnið með samþættingu námsgreina og hæfir bókin vel þeirri aðferð þar sem hægt er að vinna með dýr og jurtir í íslenskri náttúru, rím, þjóðlög og fleira.