Árshátíð eldri deildar og skólaferðalag 10. bekkjar

S.l föstudag var árshátíð unglingastigsins og tókst hún  ljómandi vel. Atriðin voru fjölbreytt og skemmtileg eins og söngur, dans, myndbönd, krýning,  framtíðarspá o.fl.  Flott frammistaða hjá þessu unga fólki.

Nú í morgun lagði síðan eldhress hópur 10. bekkinga af stað í skólaferðalag út í óvissuna en þeirra bíða allskyns ævintýri og óvæntar uppákomur næstu daga.  

Góða skemmtun krakkar!